Í ár sem fyrr styrkir Tryggja Björgunarsveitir landsins.
Björgunarsveitir landsins gegna mikilvægum hlut í öryggi landsmanna þegar vá vofir yfir á sjó og landi.
Sveitirnar hafa sýnt sig og sannað og á tíðum bjargað miklum verðmætum og hagsmunum fyrir samfélagið.
Það er því Tryggja sönn ánægja að styrkja sveitirnar og hvetja þær áfram til dáða.
Á myndinni er Arna Diljá fyrir Björgunarsveitina, Perla nemi í leit og björgun og Baldvin Samúelsson f.h Tryggja