HMS hugmyndir um breytingar á vátryggingum byggingargalla

Þetta er í anda okkar hjá Tryggja ehf.,

Tryggja vill benda á umræðuna um vátryggingu mannvirkja við göllum. 

Sjá https://hms.is/frettir/hms-leggur-til-breytingar-a-kerfi-sem-virkar-ekki

Fasteignaviðskipti eru og verða ein stærstu viðskipti einstaklinga á lífsleiðinni.

Það þarf að nálgast þetta málefni með þeim hætti að þurrka upp þessa óvissu og ágreining sem verður við þessi viðskipti en miðað við það sem kom fram hjá HMS og þeirri umræðu sem spannst hjá þeim er augljóst að breyta þarf verklagi við þessi viðskipti. 

Starfsmanni HMS var tíðrætt um að vátryggja þyrfti nýbyggingar og það til 10 ára af Danskri fyrirmynd. Ég reyndar tel líklegt að erfitt verði að fá vátryggingafélag til að samþykkja 10 ára ábyrgð en ég hef séð 5 ára ábyrgðir með ákvæði um framlengingu tímabilsins. 

Ég get verði sammála að það þarf að setja slíkt upp enda bent á bæði innra og ytra eftirlit með framkvæmdum. Það þarf að tryggja að ef illa er að staðið á þessum byggingum þá beri þeim sem fúskar að greiða fyrir endurbætur. Sá sem kaupir þarf að vera fullviss að ekki sé pottur brotinn við bygginguna. Eftirlitið þarf að vera stöðugt og á byggingartímanum en ekki stöðuyfirlit þegar búið er að pakka fúski á bak við klæðningu eða slíkt. Eftirlit kæmi óhjákvæmilega á ef vátryggingafélag myndi setja upp einhverskonar kaskótryggingu með skilgreindum áhættum til að milda tjón ef verður.

Ég reyndar tel líklegt að erfitt verði að fá vátryggingafélag til að samþykkja 10 ára ábyrgð en ég hef séð 5 ára ábyrgðir með ákvæði um framlengingu tímabilsins. 

Það er óskynsamlegt að ríkisvaldið fari í breytingar og skikki húsbyggjendur til að koma með vátryggingu á galla til handa kaupbendum húsnæðis ef vátryggingabransinn er ekki tilbúinn að skaffa slíka vöru. Slíkt gerðist í Ástralíu og var því framkvæmdin allt of flókin fyrir vikið. 

Velskilgreindar áhættur er hægt að vátryggja og vátryggingareksturinn er alltaf að leita eftir slíku. Það á líka ekki að einblína á nýbyggingar eingöngu. Ef vátrygging á skilgreinda skaða utan bruna og húseigendatryggingar er sett á við sölur á húsnæði, verði einhverskonar hefð, þá eru þessi viðskipti í betra jafnvægi. Minni möguleiki á að tapa umtalsverðum peningum við uppgötvun á leyndum göllum og ekki hvað síst vátryggingafélögin fara að skoða þessi húsnæði með það að markmiði að þurfa ekki að greiða óþarfa tjón og þá lagast fúskið án opinberar íhlutunar. 

Markaðurinn sér um þetta sjálfur. fh Tryggja

Smári Ríkarðsson

Eftir Smári Rikarðsson 1. ágúst 2024
Tryggja er lokað til fimmtudagsins 8. ágúst '24
26. apríl 2021
Tryggja vátryggði á dögunum LSS hjá Lloyd‘s insurance company. Þetta þýðir að allir slökkviliðsmenn og aðilar sem vinna eða sinna störfum á vegum slökkviliðs eru vátryggðir í slysum við störf. Fyrir LSS skipti miklu máli sterkt bakland og hátt þjónustustig frá Tryggja. Forvarnarfulltrúi Tryggja mun vera LSS til halds og trausts auk þess sem tjónadeild félagsins mun aðstoða félagsmenn komi til áfalls. Það er ánægjulegt að sjá fleiri og fleiri fagfélög leita til okkar og við bjóðum LSS velkomna í viðskipti.
Hugbúnaður gerður af starfsmönnum Tryggja ehf notaður
23. apríl 2021
Árið 2021 er tímamótaár fyrir Tryggja en vátryggingamiðlunin London Marine tekur kerfi Tryggja í notkun til að sinna sínum...
22. apríl 2021
Í ár sem fyrr styrkir Tryggja Björgunarsveitir landsins. Björgunarsveitir landsins gegna mikilvægum hlut í öryggi landsmanna þegar vá vofir yfir á sjó og landi. Sveitirnar hafa sýnt sig og sannað og á tíðum bjargað miklum verðmætum og hagsmunum fyrir samfélagið. Það er því Tryggja sönn ánægja að styrkja sveitirnar og hvetja þær áfram til dáða. Á myndinni er Arna Diljá fyrir Björgunarsveitina, Perla nemi í leit og björgun og Baldvin Samúelsson f.h Tryggja
21. apríl 2021
Lloyd's is proposing to transfer certain EEA insurance policies to Lloyd's Brussels. The proposed transfer will not change terms and conditions of any policy, except that Lloyd's Brussels will become the insurer and Data Controller in respect of the transferred policies. Further information about the proposal (including whether it could affect your pre-transfer position), which policies are transferring, your rights and what you need to do can be found at https://www.lloyds.com/brexit-transfer
Tryggja er Fyrirtæki ársins 2020
20. apríl 2021
Við erum afskaplega stolt að því að vera valið Fyrirtæki ársins 2020 hjá VR. Starfsmannastefna félagsins er að öllum líði vel, finnist gaman að mæta til vinnu og starfsmenn hafi tilgang. Eitt af því sem við leggjum mikla áherslu á er sjálfstæði og jafnrétti á vinnustað sem skilar sér svo í aukinni jákvæðni og sjálfstrausti til að skila af sér góðu verki. Við erum afskaplega stolt og ánægð að tilheyra hópi góðra fyrirtækja sem láta starfsmanna anda og vellíðan skipta máli í dagleum rekstri.