Lagalegur fyrirvari

Meðferð upplýsinga

Tilgangur

Er að stuðla að því að Tryggja fari með upplýsingar í samræmi við lög um persónuvernd og friðhelgi einkalífs, sbr. lög nr. 90/2018 um Persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga auk annarra réttarreglna sem við eiga hverju sinni og varða meðferð persónuupplýsinga og trúnaðarskyldu.


Umfang reglna

Nær til allra starfsmanna, stjórnarmanna sem og annarra sem taka að sér verk í þágu Tryggja.


Regla

Reglurnar gilda jafnt um upplýsingar sem viðskiptavinir/jónþolar hafa sjálfir veitt Tryggja, sem og upplýsingar sem Tryggja hefur aflað um þessa aðila. Reglurnar gilda um alla rafræna vinnslu upplýsinga sem og handvirka vinnslu þeirra.


Varðveisla upplýsinga um viðskiptavini

Upplýsingar um viðskiptavini Tryggja eru vistaðar eftir atvikum á rafrænu eða pappírsformi. Rafræn vistun gagna skal vera á öruggum upplýsinga miðli þar sem öryggisráðstafanir eru uppfærðar í samræmi við skilgreindar kröfur hverju sinni. Upplýsingar um viðskiptavini/jónþola á pappírsformi eru vistaðar í öruggri skjalageymslu.


Félagið hefur sett sér verklagsreglur um vistun og eyðingu persónugreinanlegra gagna. Gögnum með upplýsingum um viðskiptavini/jónþola er eytt með tryggilegum hætti, pappír er sendur til eyðingar og rafrænum gögnum er markvisst eytt í samræmi við fyrrnefndar verklagsreglur.


Aðgengi starfsmanna að upplýsingum um viðskiptamenn

Upplýsingar um viðskiptavini Tryggja eru aðgangsstýrðar. Aðgangsheimildir til starfsmanns byggjast á hlutverki hans og starfssviði innan félagsins. Starfsmaður skal einungis leita eftir þeim upplýsingum sem hann þarf á að halda í starfi sínu.


Þagnarskylda starfsmanna:

Í ráðningarsamningum starfsmanna, og/ða með sérstakri trúnaðaryfirlýsingu verktaka, er kveðið á um þagnar – og trúnaðarskyldu. Starfsmaður skal gæta fyllsta trúnaðar um hvaðeina er hann verður áskynja í starfi sínu varðandi fyrirtækið og viðskiptavini þess og skaðað getur hagsmuni þessara aðila. Eðli starfs síns vegna ber honum að meðhöndla allar upplýsingar, skjöl og gögn sem hann hefur aðgang að í starfi sínu af fyllsta trúnaði. Trúnaður þessi gildir áfram eftir starfslok.


Upplýsingaréttur viðskiptamanna

Viðskiptamenn eiga rétt á að fá afrit af gögnum sem innihalda upplýsingar er varða málefni þeirra hjá Tryggja. Óski viðskiptamaður eftir afriti af gögnum skal beiðni þess efnis vera skýr og tekið fram á afmarkaðan hátt hvaða gögnum er óskað eftir. Gögn er eingöngu látin af hendi til viðskiptavina gegn framvísun persónuskilríkja eða send á lögheimili hans. Jafnframt eru gögn látin af hendi ef framvísað er gildu umboði s.s. frá lögmanni.


Miðlun upplýsinga

Tryggja miðlar eingöngu upplýsingum sem varða viðskiptavini sína þegar fyrir því er skýr lagaskylda og fram kemur lögmæt beiðni um slíkt frá viðskiptavini/jónþola sjálfum eða opinberum aðilum s.s. lögreglu, skattyfirvöldum, Fjármálaeftirlitinu eða öðru lögbæru yfirvaldi.

Þó er félaginu heimilt að afhenda gögn til verktaka sem vinna fyrir félagið í einstaka málum. Skulu þeir verktakar falla undir reglur þessar og undirrita sérstaka trúnaðaryfirlýsingu þar sem kveðið er á um þagnarskyldu þeirra.


Öryggi

Tryggja ber ábyrgð á því að vinnsla persónuupplýsinga sé í samræmi við lög og reglur og gerir viðeigandi öryggisráðstafanir til að tryggja að svo sé.

Allar upplýsingar er varða viðskipta- og eða einkamálefni viðskiptamanna skulu meðhöndlaðar af fyllstu varúð svo að tryggt sé að þær glatist ekki eða komist í hendur óviðkomandi aðila. Sérstök aðgæsla skal viðhöfð við skráningu þeirra, varðveislu, afritun, sendingu, og eyðingu.

Rafræn vistun gagna skal vera á öruggum miðli þar sem öryggisráðstafanir eru í samræmi við kröfur hverju sinni.


Eftirlit

Stjórnendur rýna árlega aðganga starfsmanna sinna. Forstöðumaður UT hefur eftirlit með því að aðgangur starfsmanna að upplýsingum sé í samræmi við þau verkefni sem að viðkomandi starfsmaður eða starfseining innan félagsins er að sinna. Birting Reglur þessara skulu vera aðgengilegar viðskiptavinum Tryggja og eru birtar á vefsíðu félagsins.

Share by: