Ábendingar og kvartanir
Við hjá Tryggja ehf. reynum ávallt að hafa það að leiðarljósi að starfsemi félagsins sé í samræmi við eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti og viljum veita hágæða þjónustu á hverjum tíma.
Við vitum að kvartanir geta komið upp í daglegum rekstri. Hafi viðskiptavinur einhverjar ábendingar eða kvartanir, getur hann beint þeim til Tryggja ehf. með rafrænum hætti í gegnum heimasíðu félagsins eða með tölvupósti á netfangið kvortun@tryggja.is.
Félagið skal tryggja að allar kvartanir séu rannsakaðar ítarlega og meðhöndlaðar á sanngjarnan, skilvirkan og faglegan hátt. Í því felst að félagið staðfesti móttöku kvartana skriflega innan 5 virkra daga frá því að kvörtunin er lögð fram og ábendingu eða kvörtun er svarað innan 4 vikna frá því að hún var lögð fram. Ef ekki er unnt að svara innan þess tímafrests, munum við tilkynna kvartanda um ástæðu tafar og hvenær svara er að vænta.
Vilji viðskiptavinur leggja fram ábendingu eða kvörtun til Tryggja ehf., er nauðsynlegt að gefa upp nafn, kennitölu og netfang, svo að félagið geti brugðist við í samærmi við settar stefnur.
Réttarúrræði viðskiptavina
Ef viðskiptavinur er enn óánægður eftir afgreiðslu ábendingar eða kvörtunar, eða hefur ekki fengið svar við erindinu innan 4 vikna, gæti hann átt rétt á að vísa erindi sínu annað.
Úrskurðarnefnd í vátryggingamálum
Undir starfssvið nefndarinnar heyra mál sem varða réttarágreining um vátryggingarsamninga eða annan ágreining sem lýtur að dreifingu vátrygginga eða vátryggingastarfsemi að öðru leyti. Nefndin tekur við málskotum rafrænt og fylla þarf út sérstakt eyðublað sem má finna á heimasíðu nefndarinnar. Netfang þeirra er tryggingar@nefndir.is og heimilisfang Guðrúnartún 1, 105 Reykjavík. Nánari upplýsingar um málsmeðferð, samþykktir nefndarinnar, málskotsgjald o.fl. má nálgast á heimasíðu nefndarinnar, https://nefndir.is/urskurdarnefnd-i-vatryggingamalum/.
Meðferð kvartana hefur ekki áhrif á rétt viðskiptavina til að hefja mál fyrir dómstólum eða fá úrlausn ágreinings í samræmi við samningsbundin réttindi.
