Ríkið má ekki skilja veikt fólk eftir án verndar

Ríkið má ekki skilja veikt fólk eftir án verndar
Október 19, 2026 · @Smári Ríkarðsson
Frá 1. janúar 2027 hætta Sjúkratryggingar Íslands að taka þátt í sjúkrakostnaði þeirra sem veikjast eða slasast utan Evrópska efnahagssvæðisins. Alþingi samþykkti breytinguna 1. júní að tillögu Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra. Hún lætur lítið yfir sér í ríkisreikningi, en fyrir eldra fólk og fólk með langvinna sjúkdóma getur hún ráðið því hvort þau þora að fara út fyrir Evrópu.
Öryggisnetið hverfur
Í meira en tvo áratugi hefur gilt einföld regla: veikist Íslendingur utan Evrópu greiða Sjúkratryggingar kostnaðinn eins og meðferðin hefði farið fram hér heima, og við sérstakar aðstæður hluta af því sem umfram er, mest til lífeyrisþega. Þetta var ekki örlát regla, en hún var gólf sem allir stóðu á.
Nú á að taka gólfið burt. Námsmenn og tilteknir hópar sem starfa erlendis halda réttinum. Hinn almenni ferðamaður á að kaupa sér vátryggingu eða bera kostnaðinn sjálfur.
Vátrygging sem vátryggir ekki
Sem gamall hundur og sérfræðingur í skilmálum og vátryggingum hef ég lesið skilmála íslenskra ferða- og kortavátrygginga. Þar er undanskilinn kostnaður vegna sjúkdóma sem fólk hefur fengið meðferð við síðustu sex mánuði fyrir ferð, og regluleg lyfjataka telst meðferð.
Hugsum okkur mann sem tekur hjartalyf daglega og fer vestur um haf að heimsækja barnabörnin. Þar fær hann hjartaáfal. Ferðavátrygging, eins og sú sem fylgir með kreditkortum sem dæmi, getur hafnað kröfunni með vísan til undanþágunnar, og frá áramótum er opinbera netið horfið. Eftir stendur reikningur sem getur numið tugum milljóna.
Jafnvel sá sem er vátryggður á þessum stað rekst á þak. Kortavátryggingar gilda aðeins í tiltekinn dagafjölda og setja hámark á bætur, oft fáeinar milljónir, sem eiga líka að duga fyrir sjúkraflugi heim. Gjörgæsla í Bandaríkjunum og sjúkraflug fara langt fram úr slíkum mörkum. Það er því ekki nóg að segja fólki að kaupa sér vátryggingu. Fyrst þarf að svara því hvort hún fáist yfirleitt og hvort hún dugi.
Hundrað milljónir
Ráðherra hefur áætlað að breytingin spari ríkissjóði um 100 milljónir króna á ári. Það eru um 250 krónur á hvern íbúa. Enginn finnur fyrir þeim sparnaði. En ein fjölskylda finnur fyrir áhættunni með fullum þunga, og hún getur verið bæði sjúkratryggð á Íslandi og með gilda kortavátryggingu og samt falla utan bótaréttar. Sjúkratrygging er til þess að dreifa einmitt þeirri áhættu sem enginn ber einn. Hér er því snúið við: allir spara smáaura og einn ber tjónið.
Sparnaðurinn er auk þess minni en hann sýnist. Flestir sem veikjast í útlöndum hefðu líka veikst heima, og þá hefði ríkið greitt. Það er sjúklingurinn sem er sjúkratryggður, ekki sjúkrahúsið sem hann lendir á. Þess vegna þarf kostnaðarmat á borðið: hvað reglan kostaði, hverjir nutu hennar og hvaða áhætta flyst nú yfir á einstaklinga.
Hin rökin eru að einhverjir haldi lögheimili hér þótt þeir búi erlendis. Það er misnotkun og á að stöðva hana. En sömu lög veita Sjúkratryggingum nú heimild til að kanna raunverulega búsetu og fella niður rétt. Það þarf ekki að svipta alla vernd til að ná til fárra.
Þýska leiðin
Þýskaland býr við sömu meginreglu og Ísland tekur nú upp: lögbundna sjúkratryggingin greiðir almennt ekki utan Evrópu. En þar er öryggisnet. Geti fólk sannanlega ekki keypt vátryggingu vegna aldurs eða fyrri veikinda greiðir sjúkrasamlagið nauðsynlega bráðameðferð, upp að innlendu verði og innan tímamarka. Markaðurinn tekur við þeirri áhættu sem hann vill, samfélagið grípur þá sem markaðurinn hafnar. Þá leið eigum við að skoða áður en reglurnar taka gildi.
Hvernig fór þetta í gegn?
Frumvarpið var samþykkt með 32 atkvæðum, enginn sagði nei og 21 sat hjá. Þingmenn Viðreisnar studdu það. Það gerir okkur í Öldungaráði Viðreisnar ekki síður skylt að benda á afleiðingarnar. Af 24 umsögnum til velferðarnefndar kom engin frá samtökum eldri borgara og engin frá vátryggingafélögunum sem fólki er nú vísað á. Hvernig á að meta áhrif breytingar án þess að spyrja þá sem hún snertir mest?
það sem þarf að gera sem fyrst:
Í fyrsta lagi birti ráðherra kostnaðarmat og greiningu á því hverjir missa verndina.
Í öðru lagi verði tryggt öryggisnet fyrir þá sem fá ekki vátryggingu vegna aldurs eða heilsufars. Ráðherra framlengdi gömlu regluna fyrir alla til áramóta með reglugerð; sama heimild dugar til að halda henni fyrir þennan hóp.
Í þriðja lagi fái almenningur skýrar upplýsingar um hvað fellur niður og hvað vátryggingar undanskilja. Flóknir skilmálar eru ekki upplýsingar.
Við höfum byggt upp samfélag þar sem aðgangur að heilbrigðisþjónustu á ekki að ráðast af efnahag. Fólk sem hefur unnið og greitt skatta alla ævi á ekki að þurfa að hætta við að heimsækja börnin sín vegna þess að enginn vill vátryggja það. Hundrað milljónir mega ekki verða til þess.
Smári Ríkarðsson










