Alivia krabbameinstrygging
Alivia veitir þér sérfræðistuðning, leiðsögn og aðgang að alþjóðlegri sérfræðiþekkingu ef þú greinist með krabbamein.
Þú færð persónulegan umönnunarstjóra sem hjálpar þér að rata í gegnum greiningu og meðferð, ásamt aðgangi að sérfræðingum og viðbótarþjónustu eftir þörfum.
Krabbameinsgreining getur haft í för með sér ótal spurningar:
- Er greiningin rétt?
- Er þetta besta mögulega meðferðin fyrir mig?
- Eru fleiri meðferðarúrræði í boði?
- Er til sérfræðiþekking annars staðar?
- Hvað gerist næst?
Alivia hjálpar þér að fá svör og styður þig í gegnum ferlið.
Öryggi þegar mest reynir á
Krabbamein snýst ekki bara um meðferðina sjálfa. Það snýst líka um að skilja valkostina, taka upplýstar ákvarðanir og vita hvert þú getur leitað.
Með Alivia færð þú sérfræðingateymi við hlið þér þegar mest á reynir.
Hámarks tryggingabætur
600.000 evrur á mann
Hámarks tryggingabætur, óháð fjölda tjóna, eru 600.000 evrur á hvern tryggðan einstakling, samkvæmt skilmálum tryggingarinnar.
Þín leið í gegnum kerfið:
1.
Greining
Krabbamein greinist.
2.
Annað álit
Alivia fer yfir greiningu og fyrirhugaða meðferð.
3.
Sérfræðiaðstoð
Þú færð persónulegan umönnunarstjóra og aðgang að viðeigandi sérfræðingum.
4.
Frekari greining ef þörf er á
Viðbótargreiningar og háþróaðar rannsóknir geta verið í boði samkvæmt skilmálum.
5.
Meðferð
Ef skilyrði tryggingarinnar eru uppfyllt getur Alivia aðstoðað við aðgang að meðferð innan ESB/EES.
6.
Stuðningur í kjölfarið
Þú getur fengið stuðning í gegnum meðferð og endurhæfingu samkvæmt skilmálum tryggingarinnar.
Hvað er Alivia krabbameinstrygging?
Alivia krabbameinstrygging er sérhæfð trygging sem veitir aukinn stuðning ef þú greinist með krabbamein. Markmiðið er að tryggja að þú hafir aðgang að upplýsingum, leiðsögn og sérfræðiþekkingu þegar hennar er þörf.
Alivia hefur byggt upp alþjóðlegt net krabbameinssérfræðinga og heilbrigðisstofnana og hefur reynslu af samhæfingu krabbameinstilfella á sviði greiningar og meðferðar.
Alivia kemur til viðbótar við opinbera heilbrigðisþjónustu og kemur ekki í stað hennar.
Hvað er innifalið?
- Annað læknisfræðilegt álit á greiningu og fyrirhugaðri meðferð
- Persónulegur umönnunarstjóri sem fylgir þér í gegnum ferlið
- Aðgangur að alþjóðlegum krabbameinssérfræðingum
- Viðbótargreiningar og háþróaðar rannsóknir, eftir því sem við á
- Aðgangur að meðferð innan ESB/EES, samkvæmt skilmálum
- Stuðningur fyrir þig og fjölskylduna, meðal annars sálfræðiráðgjöf, ferðalög, gisting, heimahjálp og endurhæfing, samkvæmt skilmálum
- Alivia er
viðbót við opinbera heilbrigðisþjónustu og kemur ekki í stað hennar

